Samningur um Evrópskt efnahagssvæði og þingleg meðferð hans

128. fundur
Þriðjudaginn 28. apríl 1992, kl. 13:40:51 (5627)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Hér fara nú fram umræður utan dagskrár um samninginn um Evrópskt efnahagssvæði og þinglega meðferð hans. Málshefjandi er hv. 7. þm. Reykn., Steingrímur Hermannsson. Umræðan fer fram samkvæmt síðari mgr. 50. gr. þingskapa og mega því málshefjandi og viðkomandi ráðherra tala í allt að hálftíma en aðrir þingmenn og ráðherrar í allt að 15 mínútum í senn. Enginn má tala oftar en tvisvar.