Verðlagning á veiðireynslu

130. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 10:57:54 (5717)


     Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. svar hans. Eins og ég nefndi áðan er það afar erfitt að skilja hvernig það stenst lög að meta veiðireynslu á utankvótafiski til verðmæta og jafnvel bókfæra sem eign og ég veit um að í einstaka tilvikum hefur þessi veiðireynsla verið metin inn í framtíðina líka, ekki bara reynslan eins og hún er komin fram, heldur eins og hún verður hugsanleg í framtíðinni. Á sama hátt mætti þá meta vinnslureynslu í fiskvinnslunni og bókfæra á sama hátt. Ég fagna því að Ríkisendurskoðun er að athuga þetta mál þó að ég telji ekki endilega þessa einstöku sameiningu fyrirtækja, Hraðfrystihúss Stokkseyrar og Glettings, vera það sem málið snýst um heldur fyrst og fremst hvort það stenst lög að meta veiðireynslu á utankvótafiski til verðmæta og eignfæra í bókhaldi.