Verðlagning á veiðireynslu

130. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 10:59:08 (5718)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Ræða hv. 5. þm. Vestf. var nokkuð skringileg. Mér hefur verið það fullkomlega ljóst að hann er andvígur núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi, m.a. af þeim sökum að það felur í sér heimildir til að færa veiðiheimildir á milli og þær geta gengið kaupum og sölum. En einmitt það dæmi sem er til umræðu sýnir að andstaða hv. þm. við núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi á þessum rökum er byggð á býsna hæpnum forsendum vegna þess að hér er verið að draga upp dæmi um það að seld hafi verið aflareynslan á fisktegundum sem ekki eru undir núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi og lúta ekki þeim aflamarksákvæðum sem það byggir á. Það dæmi sem hér er til umfjöllunar sýnir því að ef hv. þm. telur þetta vera vandamál þá á það jafnt við um önnur stjórnunarkerfi og líka það skipulag að engar takmarkanir séu á veiðum einstakra skipa. Einmitt þetta dæmi kippir algerlega grundvellinum undan einni helstu röksemd hans gegn kerfinu.