Áhrif EES-samnings á innflutning og sölu áfengis

130. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 11:12:14 (5723)


     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Aðeins vegna síðustu orða hæstv. dómsmrh. langar mig til þess að biðja um skoðun hans á því hvað það mundi hafa í för með sér ef sala og innflutningur á áfengi væri gerð frjálsari en hér er nú, hvort það muni ekki hafa það í för með sér að þá mætti ekki setja þær hömlur, sem við þó höfum, á sölu og innflutningi á áfengi og hvort búið sé að hugsa það dæmi til enda. Mér finnst nauðsynlegt að það komi fram hjá hæstv. dómsmrh.