Kostnaður við fundaherferðir innan lands á vegum utanríkisráðuneytis

130. fundur
Fimmtudaginn 30. apríl 1992, kl. 12:01:34 (5745)



     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Ég var nokkrum sinnum búin að reyna að fá orðið en betra er seint en aldrei. Ég kem hér einungis upp til þess að vekja athygli á því að Samstaða um óháð Ísland, samtök sem hafa beitt sér gegn aðild Íslands að Evrópsku efnahagssvæði og Evrópubandalaginu hafa ekki átt greiðan aðgang að því að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. M.a. hafa þau leitað eftir því að fá fyrirgreiðslu á vegum utanrrn., að ég hygg, eða einhverra annarra opinberra aðila og eftir því sem ég seinast vissi til þá hafði þeirri beiðni ekki verið vel tekið. Þetta tel ég ekki vera í takt við óháð skoðanaskipti. Ég vona að hæstv. utanrrh. sé hér að berja í borðið til þess að láta vita að á þessu hafi orðið bót og hlakka til að hlusta á svarið.