Tilkynning um utandagskrárumræðu

132. fundur
Mánudaginn 04. maí 1992, kl. 13:33:01 (5819)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en gengið er til dagskrár vill forseti upplýsa í fyrsta lagi að hér mun fara fram utandagskrárumræða skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga. Umræðan fer fram að beiðni hv. 10. þm. Reykv., Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og er um menntamálaráð.
    Þá vill forseti jafnframt láta þess getið að gert er ráð fyrir að hér muni þingfundir halda áfram milli kl. sex og sjö eða hálfátta, eftir því sem tilefni gefast til.