Málefni menntamálaráðs

132. fundur
Mánudaginn 04. maí 1992, kl. 16:07:01 (5853)


     Anna Ólafsdóttir Björnsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. mig langar að vekja athygli og spyrja hæstv. forseta um það hverju það sætir að í lok umræðunnar tala ekki einungis menntmrh., sem við erum vön að hafi síðasta orðið eða aðrir ráðherrar sem umræðu tengjast, heldur einnig hv. þingflokksformaður Alþfl. Ég á þessu ekki að venjast og þykir það mjög undarlegt. Það vekur furðu mína að málshefjandi skuli ekki settur á mælendaskrá en alltaf er gert ráð fyrir að hann fái að hafa seinasta orðið ásamt ráðherra. Þetta vekur furðu mína og mig langar til þess að fá að vita hverju það sætir.