Náttúrufræðistofnun Íslands

136. fundur
Fimmtudaginn 07. maí 1992, kl. 17:33:20 (6092)


     Frsm. umhvn. (Tómas Ingi Olrich) :
    Virðulegi forseti. Ég held að það sé rétt að taka það fram vegna orða hv. 14. þm. Reykv. að hv. 3. þm. Reykn. var kunnugt um að þessi umræða mundi fara fram í dag og óskaði ekki eftir að vera viðstaddur. Honum var því fullkunnugt um þetta og hann var sáttur við þetta. Ég vil að þetta komi fram.