Lánasjóður íslenskra námsmanna

136. fundur
Fimmtudaginn 07. maí 1992, kl. 23:16:36 (6125)


     Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég nenni ekki að ítreka það að við sem kjósum að líta á þessi orð hæstv. ráðherra sem fyrirheit við gerum það og við vonum að þessi umfjöllun muni verða til þess að það verði skoðað með því hugarfari --- með opnum huga að með góðum rökum og skynsamlegum sé hægt að breyta einhverju. Ég vil trúa því að málefnaleg umræða og málefnaleg umfjöllun geti þarna einhverju um breytt þótt ég nenni varla að fara að ítreka það.