Kristín Einarsdóttir
:
Virðulegur forseti. Með þessu frv. er með grófum hætti vegið að jafnrétti til náms og það mun geta haft mjög alvarlegar afleiðingar. Það hefur m.a. áhrif á tækifæri kvenna til að mennta sig. Þeir sem styðja frv. og þá hugmyndafræði sem að baki býr gera sér greinilega ekki grein fyrir að menntun og rannsóknir er undirstaða framþróunar og velferðar. Hér er verið að vega að rótunum.
Ef þetta frv. verður samþykkt er stigið mikið óheillaspor. Jafnrétti á greinilega ekki upp á pallborðið hjá þeim sem standa að þessu frv. Þessu dæmalausa frv. ber að vísa frá. Ég segi já.