Forseti (Sturla Böðvarsson)
:
Forseti vill taka fram að það er stefnt að því að fundur standi til kl. fjögur í dag. Og það hefur verið reynt eftir því sem unnt hefur verið að taka þau mál til umræðu sem eru á dagskránni, en af tillitssemi við einstaka þingmenn hefur verið vikið frá dagskrárröðinni og það er ástæðan fyrir því að nú verður tekið til við að ræða 16. dagskrármálið.