Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð varðandi túlkun hv. 16. þm. Reykv. á orðum mínum um lífeyrissjóð alþingismanna. Ég vil taka það skýrt fram að ég tel að þar eigi ekki nokkurn hlut að fela enda liggur það allt saman, eins og þingmaðurinn nefndi, ljóst fyrir og það skortir ekki aðila í þjóðfélaginu til þess að draga kjör þingmanna fram í smæstu smáatriðum. Það sem ég vakti hins vegar athygli á og mér líkaði ekki í málflutningi þingmannsins var það að draga lífeyrissjóð alþingismanna á sérstakan hátt úr út umræðunni um Lífeyrissjóð ríkisstarfsmanna þar sem þeir njóta í raun sömu kjara hvað lífeyri snertir og aðrir ríkisstarfsmenn. Það býst ég við að endurspeglist síðan í kjörum alþingismanna eins og annarra ríkisstarfsmanna. Eins og ég nefndi í ræðu minni áðan hefur mér fundist á allra síðustu árum að ríkisstarfsmenn almennt, og þá væntanlega þingmenn sem aðrir, séu farnir að meta að nokkru þá miklu kjarabót sem felst í Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna ef það tekst að standa við þær skuldbingingar í framtíðinni. En það er hins vegar ekki ljóst og að mínu mati stór og mikill framtíðarvandi eins og ég nefndi áðan.