Endurbætur á Árnanesflugvelli í Hornafirði

144. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 11:06:00 (6469)


     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Með hliðsjón af svari hæstv. samgrh. áðan er ég eilítið ruglaður miðað við þá tillögu sem hæstv. ráðherra lagði fram í gær til breytingar á flugmálaáætlun þar sem lagt er til að verja 5 millj. kr. til framkvæmda við þá þverbraut sem hæstv. ráðherra mælti mjög ákveðið gegn í svari sínu hér. Ég vil því leyfa mér að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða grundvöllur er fyrir þeirri brtt. sem samgrh. lagði fram í Alþingi í gær?