Starfsfræðslunefnd fiskvinnslunnar

144. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 11:57:13 (6490)


     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Það má vel vera að það sé rétt athugasemd hjá hv. 11. þm. Reykv. að aðild verkalýðsfélaga og samtaka atvinnurekenda að þessum námskeiðum setji þeim ákveðnar skorður, en hitt hygg ég að við getum verið sammála um, að sá mikli áhugi þessara aðila fyrir þessum málum hefur verið einhver besta trygging fyrir því að unnt hefur verið að halda þessu starfi jafnkröftugu og öflugu og raun ber vitni um og það er vissulega ástæða til að þakka áhuga verkalýðsfélaganna og atvinnufyrirtækjanna á þessum þætti í okkar starfi. Ég held að það skipti mjög miklu máli að hafa hjá þessum aðilum þann bakhjarl sem þessi fræðslustarfsemi á og verði seint fullmetið.