Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Forseti vill benda hv. þm. á, þeim sem áhuga hafa, að þeir geta séð þessar upplýsingar í þingtíðindum sl. ára. Þar kemur það greinilega fram hvernig þingmál eru afgreidd í lok þings og verður væntanlega einnig hægt á þessu þingi að lesa upplýsingar um það hvernig mál hafa fengið afgreiðslu. Væntanlega spyrjum við að leikslokum hvað varðar þessi mál.
Forseti vill jafnframt geta þess að þessi mál hefur að sjálfsögðu oft borið á góma á fundum þingflokksformanna og forseta og ekki síst þessa síðustu daga, hvernig megi standa að afgreiðslu mála. Síðast í gær gerði formaður þingflokks Alþb. grein fyrir þeim málum sem þingmenn þess þingflokks hefðu lagt fram og óskuðu eftir að yrðu afgreidd. Forseti vill gjarnan upplýsa að þessi mál hafa verið á dagskrá á fundum forseta og þingflokksformanna.