Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Ég beindi tveimur spurningum til hæstv. forseta í gær og vænti þess að þeim verði svarað af forsetastóli þó það verði e.t.v. ekki í dag. Hins vegar tel ég mér skylt að þakka hv. 14. þm. Reykv. fyrir að safna saman þeim upplýsingum á einn stað sem komu fram um afgreiðslu mála á þinginu á seinustu þingum. Það eru vissulega athyglisverðar upplýsingar. Ekki rengi ég það, sem kom frá hæstv. forseta, að þetta sé allt skráð í þingtíðindum. Svo mun og vera um margan annan fróðleik sem menn flytja hér að hann finnist í bókum. En það minnir dálítið á rithöfundinn sem fór með nýja bók til vinar síns og vildi fá staðfestingu á því að hér væri eitthvað nýtt að finna, en hann svaraði því til að hann ætti allt sem í þessari bók stæði upp í hillu og vísaði á orðabókina.