Lánasjóður íslenskra námsmanna

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 17:53:06 (6570)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta þykir það mjög miður þegar þingskapaumræða truflar málin á hv. Alþingi og ekki síst þegar sá málflutningur sem fer fram undir liðnum ,,gæsla þingskapa`` varðar beinlínis það mál sem er verið að taka á dagskrá og á að fara að ræða. Það þykir forseta miður og hefur farið fram á það fyrr í dag að hv. þm. reyni að halda sig við gæslu þingskapa þegar þeir biðja um orðið undir þeim lið samkvæmt þingsköpum. En forseti getur ekki neitað þingmönnum um að tala um þingsköp ef þeir hafa eitthvað við það að athuga hvernig forseti stjórnar hér fundi.