Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég ætla að gera smávegis athugasemd við upphaf ræðu hæstv. menntmrh. Hann fór þar nokkrum orðum um samband Morgunblaðsins og Sjálfstfl. og ég er honum alveg sammála í því að það þýðir ekkert að deila um að Sjálfstfl. á ekki Morgunblaðið. Hins vegar, eins og samskipti þessara aðila hafa komið mér fyrir sjónir síðustu árin, finnst mér miklu nær að segja að Morgunblaðið eigi Sjálfstfl. Og þess vegna kannski enn þá frekar er nú ástæða til þess að hæstv. ráðherra og aðrir hv. þm. Sjálfstfl. taki dálítið mark á þessum uppalanda sínum, sem Morgunblaðið er. Ég bendi hæstv. ráðherra á að þó að Morgunblaðið vilji stundum sverja það af sér að Sjálfstfl. eigi það gerist það ekki oft að Morgunblaðið gengur í leiðara svo sterklega í berhögg við meginstefnumál Sjálfstfl., mál sem hæstv. forsrh. sagði í eldhúsdagsumræðum á mánudagskvöldið var að væri hornsteinn fjárlaganna. Morgunblaðinu finnst mikið liggja við þegar það á svo afdráttarlausan hátt eins og það gerði í morgun gengur þvert á þá stefnu sem Sjálfstfl. er að reyna að koma í gegn og ég skora nú á hæstv. ráðherra að taka nú mark á þessum ábendingum frá sínum uppalanda.