Brunavarnir og brunamál

146. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 19:30:00 (6709)

     Ingibjörg Pálmadóttir :
    Virðulegi forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta frv., enda ekki yfir mjög mörgum að messa í þessum sal. Ég er ekki eins vel að mér í hinni hvítu bók og hv. 5. þm. Vestf. sem kann hana utan að, en ég tel að þær brtt. sem hér liggja fyrir séu mjög til bóta frá því sem frv. var lagt fram því þar voru margir ,,lapsusar`` sem tekið er á í tólf liðum í brtt. Ég styð allar þær brtt. sem hér eru lagðar fram. Það sem er jákvætt við frv. er að það er stóraukið eldvarnareftirlit og fræðsla og kennsla til slökkviliðsmanna aukin og meiri kröfur gerðar til brunavarna.
    En fyrirvari minn í þessu máli er vegna þess sem hv. 5. þm. Vestf. var að tala um áðan. Það á að skoða, þegar verið er að endurskoða ríkisstofnanir eins og þá ákveðnu ríkisstofnun sem hér er til umræðu, Brunamálastofnun, hvort það sé eitthvert náttúrulögmál að þær eigi að vera í Reykjavík. En ég hefði viljað ganga miklu lengra í þessari skoðun en hv. 5. þm. Vestf. Ég hefði viljað skoða hvort sveitarfélögin almennt gætu ekki tekið þennan þátt að sér, brunavarnir og brunamál, og sameinuðust um það og í hverju kjördæmi fyrir sig yrði þessi þáttur rekinn og þá yrði Brunamálastofnun sem slík lögð niður. Þetta var ekki skoðað í nefndinni, enda viðamikið mál, en þetta er liður í að sameina sveitarfélög. Ég hef ekki heyrt nein rök gegn því að þetta sé mögulegt. Og þar með lýk ég minni ræðu.