Afbrigði um dagskrármál

147. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 21:11:01 (6711)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Svo stendur á um 1. og 2. dagskrármálið, Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins, 534. mál, og Samkomudag reglulegs Alþingis 1992, 533. mál, að til þess að þau megi koma til meðferðar þarf þingið að veita samþykki til þess, sbr. 2. mgr. 36. gr. þingskapa, vegna þess að þeim var útbýtt eftir 1. apríl. Mun forseti nú leita þess samþykkis og láta greiða atkvæði um hvort þessi dagskrármál megi koma til meðferðar.