Afbrigði um dagskrármál

147. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 21:12:44 (6712)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti mun jafnframt leita afbrigða þar sem of skammt er liðið frá útbýtingu 1. og 2. dagskrármálsins, sbr. 1. mgr. 36. gr. þingskapa, svo og er of skammt liðið frá 1. umr. um 3. dagskrármálið, Stofnun og slit hjúskapar, 531. mál, sbr. 39. gr. þingskapa. Verður nú leitað afbrigða svo unnt verði að mæla fyrir þessum málum á þessum fundi.