Ólafur Þ. Þórðarson (andsvar) :
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Við höfum ekki náð þeim árangri sem við vildum með byggðastefnunni. En það fullyrði ég að sú sókn sem hún skapaði hefur orðið til þess að það hefur orðið mjög mikil framför á mörgum sviðum í þessu landi þó að við höfum ekki náð því jafnvægi sem við vildum.