Umræða um skýrslu umhverfisnefndar um álver á Keilisnesi o.fl.

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 11:23:06 (6757)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseta langar að bæta því við það sem hv. 3. þm. Norðurl. e. sagði að það er einmitt það sem er að gerast núna að formenn þingflokka eru að ræða saman, bæði stjórnarandstöðu og stjórnarliða, um það hvernig megi koma sér saman um þau mál sem verða á dagskránni síðustu daga og klukkustundir á þessu þingi.