Umræða um skýrslu umhverfisnefndar um álver á Keilisnesi o.fl.

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 11:25:57 (6759)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Það er eins með þessa þáltill. eins og þá skýrslu sem hér hefur verið rædd, hún er líka mikilvægt mál. Það má segja að hún sé geymd en ekki gleymd og verður væntanlega á dagskrá áður en þingi lýkur. Það var markmiðið að hafa hana á dagskrá í dag en var horfið til þess í samráði við hæstv. ráðherra að taka fyrst frv. um málefni fatlaðra. En það þýðir það ekki að þessi skýrsla eigi að fara út af borðinu. Væntanlega verður hún á dagskrá á mánudaginn.