Forseti (Sturla Böðvarsson)
:
Vegna ummæla hv. 8. þm. Reykn. vill forseti taka fram að það er að sjálfsögðu gott og stöðugt samráð milli forseta og formanna þingflokkanna og það er auðvitað reynt eftir bestu getu að skipuleggja þinghaldið þannig að allt gangi fram sem best og væntir forseti þess að svo verði áfram eins og hingað til hefur verið.