Málefni fatlaðra

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 14:48:48 (6884)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Ég var að vona að einhver af stjórnarsinnum mundi standa upp og gera grein fyrir stuðningi sínum við þetta ákvæði. Það hefur ekki gerst enn. Mér er ekki ljóst hvaða djúpa hugsun liggur á bak við það að þetta skuli samþykkt og greiði ekki atkvæði.