Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Ég þóttist hafa hlustað nokkuð grannt á hvað hv. 17. þm. Reykv. sagði. Það kom fram hjá honum að ekki væri aðeins verið að taka ákvörðun um það hvenær þingið kæmi saman heldur og einnig hvenær þessu þingi yrði slitið. Ég heyrði ekki dagsetninguna á því. Mér þætti vænt um ef framsögumaður gerði grein fyrir því hafi það farið eitthvað á milli mála þannig að við fáum þá upplýsingarnar um það líka fyrst hér er greint frá því að þetta tvennt hangi saman.