Tilhögun þingfundar

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 18:06:56 (6918)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Áður en haldið er áfram með dagskrána er rétt af forseta að upplýsa að fyrirhugað er að gera matarhlé kl. hálfátta til hálfníu. Jafnframt er fyrirhugað að um sjöleytið verði þessum fundi slitið og settur nýr fundur þar sem tekið verður á dagskrá ef leyft verður mál sem sjútvn. hefur verið að afgreiða, um Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins.