Efling íþróttaiðkunar kvenna

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 18:33:44 (6930)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Sem ein flutningskvenna þessarar till. eins og frsm. hv. nefndar fagna ég því að nefndin komst að þessari skynsamlegu niðurstöðu og lýsi ég ánægju minni yfir því að þetta átak muni verða gert til að efla íþróttaiðkanir kvenna.