Afbrigði um dagskrármál

150. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 18:35:40 (6931)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þannig háttar til með nokkur dagskrármál, þ.e. 12., Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, 534. mál, 15., Lífeyrissjóð sjómanna, 489. mál, 20., Greiðslukortastarfsemi, 402. mál, og 23., Þjóðhagsstofnun, 25. mál, að of skammt er liðið frá útbýtingu þskj. og verður því að leita afbrigða um að þau megi koma á dagskrá og til afgreiðslu. Verður nú þeirra afbrigða leitað.