Skýrsla um málefni og hag aldraðra

150. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 21:26:49 (6947)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill upplýsa það nú þegar að a.m.k. svör við fimm skriflegum fyrirspurnum hafa borist í dag og eru í prentun og verða þau þá væntanlega komin í tæka tíð til hv. þm. sem þær eiga.
    Hv. 2. þm. Vestf. talar um gæslu þingskapa en forseta hafði ekki unnist tími til að svara hv. þm., þ.e. fyrirspurn hans varðandi skýrslu sem hann nefndi fyrr þegar hann tók til máls um gæslu þingskapa. Forseti getur upplýst hv. þm. um það að nú standa yfir viðræður milli þingflokksformanna og þá verður þessari fyrirspurn komið til skila og væntanlega tekin til umfjöllunar.