Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

150. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 22:00:57 (6957)



     Guðmundur Hallvarðsson :
    Virðulegi forseti. Um langan tíma hefur sú sjóðasöfnun, sem verið hefur, verið mikið deilumál meðal sjómanna. Ég greiði atkvæði og segi já vegna þess að hér stendur að sjútvn. beini því til sjútvrh. að við endurskoðun á frambúðarfyrirkomulagi sveiflujöfnunarsjóðs í sjávarútvegi, sem nú stendur yfir, verði tryggt að greiðslur í og úr sveiflujöfnunarsjóði hafi ekki bein áhrif á hlutaskipti sjómanna. Sjútvrh. hefur lýst því yfir að hann muni beita sér fyrir þessu máli og þess vegna segi ég já.