Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Þar sem of skammt er liðið frá útbýtingu á 1. og 6. dagskrármáli þarf að leita afbrigða um að þau tvö mál megi koma á dagskrá og til afgreiðslu. Það er annars vegar Ábyrgðasjóður launa vegna gjaldþrota, frv., 547. mál, og hins vegar Atvinnuleysistryggingar, frv., 529. mál, og verður nú afbrigða leitað.