Ábyrgðasjóður launa vegna gjaldþrota

153. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 20:18:29 (7133)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) :
    Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni vil ég aðeins staðfesta að reglugerð sú sem hér um ræðir er sem næst tilbúin. Hún verður tilbúin á næstu dögum og verður þá gefin út. Hún mun taka gildi eigi síðar en 1. júní nk. Ég get því staðfest það sem hv. þm. Svavar Gestsson óskaði eftir að staðfest yrði.