Afhending skjala úr ráðuneytum

4. fundur
Miðvikudaginn 09. október 1991, kl. 15:53:00 (126)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti hefur heyrt þessar athugasemdir og óskir hv. 4. þm. Austurl. og mun kynna sér þær nánar við fyrsta tækifæri. Forseti hafði vænst þess að fá nú tækifæri til þess að

koma öðru dagskrármálinu til nefndar sem er aðeins atkvæðagreiðsla og vill beina því til hv. þingmanna hvort það mætti verða.