Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

5. fundur
Fimmtudaginn 10. október 1991, kl. 20:30:00 (131)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Fundur er settur í Alþingi. Gengið er til dagskrár og fyrir tekið eina dagskrármálið, stefnuræða forsrh. og umræður um hana sem útvarpað verður og sjónvarpað héðan úr þinghúsinu.
    Umræðurnar skiptast í tvær umferðir. Í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund og aðrir þingflokkar 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver flokkur 10 mínútur til umráða. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., Framsfl., Alþfl., Alþb. og Samtök um kvennalista.
    Ræðumenn verða fyrir Sjálfstfl.: Davíð Oddsson forsrh. í fyrri umferð, Sigríður A. Þórðardóttir, 10. þm. Reykn., og Pálmi Jónsson, 2. þm. Norðurl. v., í síðari umferð. Af hálfu Framsfl. tala Steingrímur Hermannsson, 7. þm. Reykn., og Ingibjörg Pálmadóttir, 2. þm. Vesturl., í fyrri umferð en Páll Pétursson, 1. þm. Norðurl. v., í þeirri síðari. Ræðumenn Alþfl. verða Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. og Össur Skarphéðinsson, 17. þm. Reykv., í fyrri umferð en Sighvatur Björgvinsson heilbrrh. í þeirri seinni. Fyrir Alþb. tala Ólafur Ragnar Grímsson, 8. þm. Reykn., og Svavar Gestsson, 9. þm. Reykv., í fyrri umferð en Anna Kristín Sigurðardóttir, 4. þm. Suðurl., og Kristinn H. Gunnarsson, 5. þm. Vestf., í síðari umferð. Af hálfu Samtaka um kvennalista tala Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, 10. þm. Reykv., og Kristín Ástgeirsdóttir, 18. þm. Reykv., í fyrri umferð en Anna Ólafsdóttir Björnsson, 9. þm. Reykn., í þeirri síðari.
    Hefst nú umræðan og tekur fyrstur til máls hæstv. forsrh., Davíð Oddsson.