Forseti (Salome Þorkelsdóttir)
:
Forseti hefur nú þegar upplýst það að andsvar er ekki við athugasemdir annarra þingmanna heldur strax á eftir ræðu sem flutt hefur verið. (Gripið fram í.) Hv. 17. þm. Reykv. var ekki að flytja aðalræðu. Forseti vill enn og aftur benda á að hér fer fram utandagskrárumræða um málefni St. Jósefsspítala í Hafnarfirði og biður hv. þingmenn að hafa það í huga.