Evrópska efnahagssvæðið (EES)

8. fundur
Miðvikudaginn 16. október 1991, kl. 16:52:00 (223)


     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Það er rétt sem hv. þm. Kristín Einarsdóttir sagði um norska þingið og það sem þar þyrfti hugsanlega að gerast að því er ég best veit. Hins vegar er það auðvitað svo að í ólíkum löndum eru ólíkar reglur og lög og menn túlka fullveldið með mismunandi hætti. Ég held að það sé alveg ljóst að inntak orðsins fullveldi hefur verið að breytast og er að breytast en er ekki eitthvað óumbreytanlegt. Þannig hygg ég að inntak orðsins fullveldi sé nú nokkuð annað árið 1991 t.d. en það var árið 1918.