Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Vegna athugasemdar hv. 5. þm. Vestf. vil ég ítreka það að í svari mínu um Reykjanesskóla var það eitt sagt að starfsemi færi þar ekki fram á skólaárinu 1991--1992 og hins vegar að skipuð yrði nefnd til þess að gera tillögur um starfsemi í Reykjanesi í þeim tilgangi sem þjónaði hagsmunum byggðarlagsins.