Sjávarútvegsmál

10. fundur
Fimmtudaginn 17. október 1991, kl. 15:02:00 (296)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
     Frú forseti. Ég veit ekki hvernig skilja á andsvar hv. þm., en það væri æskilegt að fá svör við því hér síðar í umræðunni af hálfu talsmanna Framsfl. hvort það hafi verið réttur skilningur í ræðu hv. þm. þegar hann gagnrýndi það að Seðlabankinn yrði gerður styrkari í þeim tilgangi að viðhalda hér stöðugleika í efnahagsmálum, að það væri vilji Framsfl.

að draga úr þeim stöðugleika og kynda undir verðbólgu á nýjan leik. Ég vona að það sé ekki réttur skilningur. En það hefði mátt ætla að þetta væri stefna Framsfl. eftir að hafa hlustað á ræðu hv. þm. Ég vona að það verði þá leiðrétt af talsmönnum flokksins síðar í umræðunni.