Tilkynning um utandagskrárumræðu

11. fundur
Mánudaginn 21. október 1991, kl. 13:41:02 (309)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti vill geta þess að sú utandagskrárumræða, sem fyrirhuguð var í dag um skólamál, getur ekki orðið vegna veikinda hæstv. menntmrh. en stefnt er að því að hún verði síðar í vikunni.
    Þess í stað verður leyfð utandagskrárumræða að beiðni hv. 5. þm. Vestf., Kristins H. Gunnarssonar, um ummæli hæstv. forsrh. um byggðamál. Umræðan hefst um eða upp úr kl. 2.30 eftir því hvernig stendur á með dagskrá.