Reglur um launuð aukastörf ráðherra

12. fundur
Þriðjudaginn 22. október 1991, kl. 14:13:01 (365)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Ég vil leyfa mér að bera fram fyrirspurn til hæstv. forsrh.
    Hefur hæstv. forsrh. sett reglur og eða beint tilmælum til ráðherra sinna um það hvað samræmist eða samræmist ekki störfum þeirra sem ráðherra? Hér er átt við önnur launuð störf. Ef slíkar reglur hafa verið settar og eða ef tilmælum hefur verið beint til þeirra er óskað eftir að það verði upplýst. Ef slíkar reglur hafa ekki verið settar og ekki verið beint til þeirra tilmælum, þá er óskað eftir því að fá það upplýst hvort ætlunin er að gera það.