Skýrsla utanrrh. um niðurstöður samninga um Evrópskt efnahagssvæði

13. fundur
Miðvikudaginn 23. október 1991, kl. 15:52:00 (397)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Að gefnu tilefni vill forseti í mestu vinsemd benda hv. þingmönnum á að ávarpa ekki ráðherra eða þingmenn

beint í 2. persónu því að slíkt er ekki leyfilegt samkvæmt 54. gr. þingskapa.
    Nú á einn þingflokkur eftir að tala í fyrri umferð. Það eru ekki nema fimm mínútur þangað til þingflokksfundir eiga að hefjast og það hefur orðið að samkomulagi við Kvennalistann að þær bíði með sína ræðu þar til kl. 6.