Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson)
:
Frú forseti. Í tilefni af þessari umræðu um ríkisjarðir þykir mér rétt að minna á að á sínum tíma þegar ríkisstjórn dr. Gunnars Thoroddsens sat að völdum, þá skipaði þáv. kirkjumálaráðherra svokallaða kirkjueignanefnd sem síðan skilaði mjög veigamiklu og viðamiklu áliti um þessi efni. Það var fyrri hluti þessa verks. Síðari hluti verksins er ókominn út en þar er um að ræða greinargerðir um einstakar kirkjujarðir. En í fyrri hluta verksins, sem fyrir liggur og hefur legið fyrir um nokkurn tíma, eru færð að því mjög veigamikil lagarök að þessar jarðir tilheyri kirkjunni eða einstökum sóknum. Það er útilokað að ræða um þessi málefni án þess að þessi veigamikla og vel gerða greinargerð og skýrsla komi þar til álita. Niðurstöður þessarar nefndar eru mjög ótvíræðar í þessu efni og jafnframt er varpað fram nokkrum valkostum um leiðir til þess að fara í framhaldi af þeirri niðurstöðu sem nefndin kemst að.