Fjárveiting til atvinnumála kvenna á landsbyggðinni

14. fundur
Fimmtudaginn 24. október 1991, kl. 11:52:00 (442)

     Fyrirspyrjandi (Einar Már Sigurðarson) :
     Frú forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir svörin en verð þó að taka fram að ég sakna þess að heyra ekki hvenær úthlutanirnar fóru fram en ég held að það geti skipt örlítlu máli vegna ýmissa hluta sem rætt hefur verið um í tengslum við þessar úthlutanir.
    Ég vil einnig taka undir það sem kom hér fram áðan að það hefði verið miklum mun æskilegra að fleiri hefðu um þetta vitað. Eins og kom fram í máli mínu áðan voru ýmsar atvinnumálanefndir sveitarfélaga sem treystu sér hreinlega ekki til þess að gefa svör á jafnskömmum tíma og um var beðið. En við skulum vona að sú reynsla sem ráðuneytið hefur fengið við þessa úthlutun nýtist á næsta ári því að ég hef séð að í fjárlagafrv. fyrir árið 1992 er gert ráð fyrir sömu upphæð, ef ég man rétt, til sama verkefnis.