Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson)
(um þingsköp)
:
Hæstv. forseti. Það hafa sjálfsagt orðið hér mistök með því að hafa þennan hátt á umræðunni þó það hafi allt verið áreiðanlega vel meint. Þó að ég hafi tekið ýmis gögn með mér hér upp í ræðustól þá hafði ég ekki tímamælt það sem ég kynni að segja. Og þótt við hefðum rætt saman, ég og hv. þm. Kristín Ástgeirsdóttir, þá vissi ég svo sem ekki hversu langan tíma það tæki mig að svara öllum þeim mörgu atriðum sem komu fram í hennar ræðu og mér entist ekki hálftíminn til þess.
Ég er tilbúinn að ræða núna áður en lengra er haldið málefni Héraðsskólans í Reykjanesi. Ef það kostar það að ég nota seinni ræðu mína í það og ég er búinn með ræðutímann þá er komið hérna nýtt kerfi, andsvör, er það ekki? Ég hef ekki séð hvernig það virkar en mér skilst að ég geti komið býsna oft upp í ræðustólinn ef ég nota þær heimildir. Ég er alveg tilbúinn að reyna það. Ég legg það í vald forseta hvaða hátt við höfum á þessu.