Skólamál

15. fundur
Fimmtudaginn 24. október 1991, kl. 16:33:00 (485)

     Einar K. Guðfinnsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Ég hygg að í ræðu minni hafi ég ekki nefnt það einu orði að ég væri sérstaklega að atyrða hv. 5. þm. Vestf. Ég fann eingöngu að því að væri verið að slá þarna saman tveimur mjög stórum og viðkvæmum málum sem hvort um sig kallaði á sérstaka umræðu. Ég fann einnig að því með hvaða hætti þetta mál var borið upp og taldi að eðlilegra væri að nýta sér ákvæði þingskapalaganna um það að biðja um skýrslu um þessa mál. Ég hefði talið það heppilegri framgangsmáta. Um þetta geta menn auðvitað deilt. Ég hefði hins vegar talið að sú umræða gæti orðið markvissari og frjórri og leitt til ákveðnari niðurstöðu. Í því fólst aðfinnsla mín gagnvart hv. þm. en öðru ekki. Ég beindi spjótum mínum í ótilgreindar áttir varðandi það að verið var að slá saman tveimur málum í þessari umræðu og ég tel að hv. þm. sé óþarflega hörundssár gagnvart þessu.