Ólafur Þ. Þórðarson
(um þingsköp)
:
Herra forseti. Hv. 5. þm. Reykv. vakti athygli á því að ekki gæfist næði til að ræða þetta mál með eðlilegum hætti á svo stuttum tíma sem til þess er ætlaður fyrst málið er á annað borð tekið upp á þessu stigi. Ég tel að þessi athugasemd sé rétt og mér finnst mjög óeðlilegt af forseta að gefa ekki hæstv. sjútvrh. orðið til að gera grein fyrir stöðunni. Það liggur alveg á borðinu að hann sem forsrh. landsins markaði stefnuna með ákvörðun sinni á sínum tíma. Miðað við hvernig tímamörk eru nú gjarnan virt hér tel ég ákaflega óeðlilegt að skilja við umræðuna í jafnlausu lofti og hefur verið gert. Hæstv. menntmrh. er varla lentur í málinu því að hann hefur komist að þeirri niðurstöðu að það eigi að bæta Kópavogskaupstað það að taka sjálfur ákvörðun um að hætta við heimsmeistaramótið og má furðulegt heita.