Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun

18. fundur
Mánudaginn 04. nóvember 1991, kl. 23:48:00 (600)

     Einar K. Guðfinnsson (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Varðandi þennan búvörusamning þá annaðhvort styðja menn hann eða styðja hann ekki. Menn styðja hann ekkert í aðalatriðum eða aukaatriðum, menn styðja hann eða styðja hann ekki. Það liggur fyrir að hv. 5. þm. Vestf. sagði á þessum útvarpsfundi að hann hefði við hann athugasemdir. Það er kjarni málsins og um það snýst þessi orðræða.