Samráðsfundir forseta og formanna þingflokka

20. fundur
Miðvikudaginn 06. nóvember 1991, kl. 13:55:00 (686)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Forseti verður að upplýsa, þó að það sé kannski ótrúlegt, en henni hefur ekki enn þá unnist tími til að líta í morgunblöðin, blöðin sem komu út í dag, og hefur því lítið fram að leggja varðandi þá blaðagrein sem hér hefur verið vitnað til, enda kannski ekki hennar verkefni að gera það héðan úr forsetastóli. Hins vegar vill forseti ítreka það, eins og hún hefur oft gert, og gerði hér í upphafi, að óska eftir góðu samstarfi við alla þingmenn, hvort sem þeir tilheyra stjórn eða stjórnarandstöðu. Þannig mun forseti vinna hér eftir sem hingað til.